18.10.2010 | 11:17
Jesúbann fyrir sunnan
Nú verða næstu litlu jól trúarlega hlutlaus" í skólum höfuðborgarinnar nái tillögur meirihluta mannréttindaráðs Reykjavíkurborgar fram að ganga.
Trúarlegt hlutleysi litlu jólanna lýsir sér í því að úthýsa öllu trúarlegu.
Trúarlega hlutlaus lítil jól er annað nafn á trúlausum litlum jólum.
Og trúarlega hlutlausir skólar annað heiti á trúlausum skólum.
Þar er í nafni mannréttinda bannað að syngja Heims um ból" í en þess í stað leyfilegt að kyrja sönginn um Snæfinn snjókall.
Helgileikir reykvískra skólabarna hafa lengi verið þyrnir í augum allra ærlegra mannréttindasinna. Mannréttindaráðið ætlar því að banna slíka leiklist.
Hvorki englar né fjárhirðar líðast í skólunum og stjarna vitringanna samrýmist ekki mannréttindum.
Mannréttindin hafa heldur ekki pláss fyrir gull, reykelsi og myrru en hugsanlega má geta um annars konar veraldlegar og afhelgaðar gjafir.
Hljóti jata náð fyrir augum trúboðseftirlits Reykjavíkurborgar verður hún að sjálfsögðu að vera tóm því að í nafni mannréttinda verður að halda Jesú frá reykvískum skólabörnum á litlu jólunum þeirra.
Og af því að bannað er að syngja sálma í skólum Reykjavíkurborgar hlýtur að vera skýlaust mannréttindabrot sé sálmurinn nr. 516 úr Sálmabók þjóðkirkjunnar sunginn þar innan veggja.
Myndin er trúarlega hlutlaus jólamynd.
Athugasemdir
Já auðvitað er sá sálmur leiðinda mannréttindabrot.
Var á landsleik fyrir rúmri viku og gat engan veginn sungið með þjóðsöngnum.
En þér finnst það kannske allt í lagi og að ég teljist ekki Íslendingur.
Björn Friðgeir (IP-tala skráð) 18.10.2010 kl. 11:47
Þó svo að það sé vinna þín að vera prestur, þá getur þú ekki skammast yfir sjálfsögðum mannréttindum barna og foreldra þeirra.
Ef einhver vill setja barn sitt undir Jesú, þá getur sá hinn sami gert slíkt utan skólatíma.
Þú gerir þér væntanlega grein fyrir því að ef þið fáðið aðgengi að börnum, þá eiga allir trúarsöfnuðir að fá sama aðgengi að börnum þessa lands.
Við sluldum börnum okkar það að heilaþvottur hverskonar, hvort sem það eru trúarstofnanir, fjármálastofnanir eða annað... þessu verður að halda frá börnum; Og þá alveg sérstaklega trúarbrögðum.
Kannski Svavar ætti að hætta að vera prestur og gerast mannréttindafrömuður... veit ég vel að það er ekki létt að fá milljóna á mánuði fyrir slíkt... en peningar eiga ekki að skipta öllu máli Svavar minn... þú veist jafnvel og ég að peningar eru það sem keyra ríkiskirkju áfram.. peningar og völd eru það sem keyra öll skipulögð trúarbrögð áfram.
Hugsa málið Svavar... þú veist að ég hef rétt fyrir mér...
doctore (IP-tala skráð) 18.10.2010 kl. 11:49
Sálmur nr. 516 er líka óttalegur rjómatertukveðskapur og leirburður sem ekki hefur staðist tímans tönn. SéraMatti gerði margt betur en þetta. Á þjósöngur ekki annars að vera um þjóð og land, en ekki barasta eintóm lofrulla um Guð?
Skeggi Skaftason, 18.10.2010 kl. 13:44
Sæll Svavar. Nokkuð góður pistill miðað við lélegan málstað, það verð ég að segja. Ég tek alveg undir með Skeggja hér að ofan þó ég kunni vel þjóðsönginn og taki undir á íþróttaleikjum og oftast þegar hann er sunginn en sem betur fer er seinna versið aflagt fyrir löngu enda hryllingur alveg hreint
.
Voru Gull, reykelsi og myrra ekki veraldlegar gjafir á sínum tíma þó þær ættu að tákna annað í nútímaskýringum?
Ég heimsótti barnabörnin mín í dag þegar ég kom til landsins og sá tveggja ára er búin að læra faðirvorið og sá þriggja ára fer með það eins og prestur af stóli.
Hvað ætli foreldrarnir segðu ef ég færi að kenna þeim eitthvað bull úr kóraninum
?
Er ekki bara málið að láta foreldrana um þetta allavega fram á fermingaraldur og þá færu þessi grey í trúarfræðslu um öll trúarbrögð. Nægur er nú forgangur þjóðkirkjunnar þó hún yfirtaki ekki tíma í skólum og leikskólum og auki á aðgreiningu þar líka.
Reyndar held ég að þú sért svo góður prestur Svavar að þú þurfir ekki ríkistryggingu til að halda starfinu og laununum sem eru varla of há fyrir þetta starf. Kveðja Kolla.
Kolbrún Stefánsdóttir, 18.10.2010 kl. 23:08
Svavar: Halló, þetta er trúarleg jólamynd - því það eru spor í snjónum.
Annars finnst mér málstaður þinn ekki lélegur Svavar. Mér finnst hann harla góður.
Karl V. Matthíasson, 19.10.2010 kl. 00:11
Það er merkilegt hvað trúleysingjar í Siðmennt eru "siðmenntaðir" þeir taka alls ekki tillit til neinna skoðana nema sinna eigin og troða sínum lífsskoðunum ofan í kokið á þjóðinni hvað sem tautar eða raular, eru í raun frekar ósiðlegir í orðum og gjörðum.
Ég hef einhvern veginn á tilfinningunni að bannið við aðgengi trúfélaga að skólum í Reykjavík eigi að auðvelda siðfræðingum að selja námskeið inn í skólana (þeir eru jú sérfræðingar) þar sem þeir geta boðað trúleysi.
Fyrir nokkru kom maður hingað til lands sem er frægur fyrir að hafa boðið háa fjárupphæð hverju þeim sem getur sannað fyrir honum að guð sé til.
Núna ætla ég að toppa hann og bjóða tíu sinnum betur hverjum þeim sem getur sannað fyrir mér að guð sé ekki til.
En til að vera alveg sanngjarn þá tek ég það fram (nokkuð sem hann gerði ekki) að það er ég einn sem met sönnunina.
Einar Þór Strand, 19.10.2010 kl. 09:43
Bjarnfreðarson einsog DoctorE er góður fulltrúi þess siðrofs sem ofstækismenn "dauðhreinsunarinnar" boða. Ný trúarbrögð barnanna eru vísindaskáldsagan um furður alheimsins. "Herópið" þeirra eru tímarit einsog Lifandi Vísindi. Æðstu prestararnir eru Dawkins og guðspjallamaðurinn heitir Darwin ( ekki með vitund og vilja hans). Í nafni "upplýsingarinnar" á að rjúfa tengsl þjóðarinnar við kristna menningu. Fagnaðarboðskapurinn er "upplýsing" fávísrar alþýðu á "villu" sinni.
Næsta kynslóð þessara predíkanta verður fórnarlömb sinnar eigin hugmyndafræðilegrar kúgunar í nafni "hlutleysis". Það verður uppreisn gegn slíkri firru að sjálfsögðu. En verði hún gerð á grunni siðrofs og vanþekkingar á andlegum hefðum og fróðleik, ólæsis á trúarlegar táknmyndir munu trúleysingjarnir ekki njóta þess umburðarlyndis sem þeir sannarlega hafa, sem þröngsýnn minnihlutahópur í dag.
Síðan eitt enn: Þjóðsöngurinn lofar guð! það er náttúrulega svoooo smekklaust.... eða er þetta bara einkenni þeirra sem vilja vera "smart" á hverjum tíma og hafa misst tengslin við menningu sína og arfleifð? Hvaða tískublaður er þetta. Ekki málefnalegt. Við hlaupum ekki eftir tískunni. Hún kemur til okkar.
Gísli Ingvarsson, 19.10.2010 kl. 10:05
Þakka þer fyrir þetta. Það er einmitt svona sem flestir sem ég þekki upplifa þetta. Þeim er nóg boðið og það er verið að gera tilraun til að taka trúfrelsi af samfélaginu þar sem krafan er að iðka trúleysi. Þetta menningarofríki er aldeilis ofboðslegt og furðulegt að sérhagsmunahópur geti gengið svona á rétt fjöldans til trúfrelsis og frjálsrar trúariðkunar allt í nafni trúfrelsis. Hver á galdrauppskriftina að þessari sjónhverfingu niðurrifsafla?
Björn Erlingsson (IP-tala skráð) 19.10.2010 kl. 13:16
- Imagine there's no countries, it isn't hard to do
No need to kill or die for and no religions too
Imagine all the people
Living life in peace -
- höfum það einfalt!
bestu kveðjur, vilborg
Vilborg Eggertsdóttir, 19.10.2010 kl. 23:14
Vilborg
Eins og fólk í siðmennt og vantrú hagar sér þá er það ekki trúlaust heldur trúir það að guð sé ekki til og það verður að flokkast sem trúarbrögð því ekki getur það sannað að hann sé ekki til.
Einar Þór Strand, 20.10.2010 kl. 20:52
Sæll séra Svavar. Afsakaðu að ég skuli nota þennan vettvang, en mig langar til að varpa fram spurningu til Vantrúar- og Siðmenntarfólks; hver er ykkar skilgreining á trúboði í skólum? Auðvitað væri gott að fá svör frá fleirum, en ég hef ekki getað fundið neina skilgreiningu á þessu hjá þeim.
Sigríður Jósefsdóttir, 23.10.2010 kl. 11:36
Sæll gamli skólabróðir,
Það er gott að sjá að þú heldur sannleikanum á lofti. Ég hef áður skrifað og endurtek að þegar íslenska þjóðin kýs spéfugla í borgarstjórn til að mótmæla spéfuglunum sem á undan gengu þá er ekki von á góðu.
Það er ótrúlegt ef litlum hópi fólks tekst að ryðja trúnni burt úr leik- og grunnskólum landsins í nafni mannréttinda. Eru það mannréttindi minnihlutans að traðka á mannréttindum meirihlutans?
Jón Gnarr var spurður að því fyrir skemmstu hvort hann tryði á Guð. Hann neitaði því en sagði að Guð tryði á hann. Ég átti því ekki von á góðu frá Jóni.
Við lærðum í MA forðum daga að allt er í heiminum hverfult (eða 'Sic transit gloria mundi,' sem mekir orðrétt: 'Þannig breytist dýrð heimsins'). Ég vona sannarlega að 'trúboðseftirliti Reykjavíkurborgar' verði ekki að ósk sinni.
Matthías Ægisson (IP-tala skráð) 23.10.2010 kl. 14:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.