5.1.2011 | 15:57
Áfram reið!
Í áramótaávörpum sínum hvöttu ráðamenn og leiðtogar landsmenn til að láta af neikvæðni og reiði en fyllast þess í stað bjartsýni og jákvæðni.
Nú eru örfáir dagar liðnir af árinu 2011 og hér eru nokkrar af þeim fréttum sem þjóðinni hafa verið fluttar á þeim skamma tíma:
- Lögmaður fær milljónir í aukagreiðslur frá gjaldþrota fyrirtæki fyrir að leggjast svo lágt að vinna fyrir það.
- Íslenskur banki lánaði rússneskum fjárglæframanni hundruð milljarða korteri áður en hann fór á hausinn.
- Fólk í skilanefndum bankanna skammtar sér ofurlaun.
- Formaður stéttarfélags lætur félagið gefa sér fimm milljón króna jeppa í jólagjöf.
- Ef þjóðin vill fá að fylgjast með landsliðinu sínu, sem er starfrækt fyrir fjármagn frá henni, verður hún að kaupa áskrift hjá einu helsta nafninu í Hruninu.
Þjóðin getur ekki hætt að vera reið meðan svona fréttir hljóma.
Við eigum að vera neikvæð út í spillinguna og okkur er ekki viðbjargandi sem þjóð ef ranglætið reitir okkur ekki til reiði.
Þessar fréttir sýna að sópar reiðinnar eiga enn miklu hreinsunarstarfi ólokið.
Myndin er af áramótaflugeldum á himni mínum.
Athugasemdir
Já - við eigum að vera reið. Venjulegt vinnandi fólk nær ekki endum saman og á meðan ganga þeir sem stálu frá okkur enn lausir (og stelandi) og það er mulið undir r......... á hinum ýmsu forkólfum ríkisins sem eru varla að vinna vinnuna sína. Jú ég er reið og þekki marga sem eru það líka.
Dagný, 5.1.2011 kl. 22:29
Er ennþá hægt að fá allmennilegan jeppa fyrir 5 milljónir? Ef svo er, þá eru það góðar fréttir. Það tæki hinn venjulega félaga í verkalýðsfélaginu aðeins nokkra áratugi að vinna sér inn fyrir skrjóðnum.
Ég fyllist gleði yfir þeirri fullvissu að þeir sem borga gjöld til félagsins sofi vel, vitandi að fé þeirra sé vel varið. Enda hlýtur félagið að hafa samið um aksturspeninga og eða glæsidrossíur öllum þeim til handa, rétt eins og þykir sjálfsagt fyrir leiðtogann.
Hörður Þórðarson, 6.1.2011 kl. 08:04
Ekki ætla ég að kaupa áskrift af Stöð 2 til að sjá handboltalandsleikina. Ég verð bara að sleppa því að sjá þetta núna.
Ég ef aldrei verið áskrifandi af þessum íslendingahataramiðli og mun aldrei gera. Við eigum að vera reið. Ég hætti allavega ekkert að vera reiður, allavega ekki á meðan það er ekki búið að moka þessu landráðs pakki úr þinghúsinu!
Árni Grétar (IP-tala skráð) 6.1.2011 kl. 12:29
Ég bara skil ekki þessar launagreiðslur hjá skilanefndunum. Er nefndirnar ekki að vinna fyrir hið opinbera eftir að bankarnir urðu ríkiseignir? Og er ekki hægt að setja þak á greiðslur fyrir nefndavinnuna í skilanefndunum? Hvernig er hægt að fá rúmar 3 miljónir í laun á mánuði? Hvernig kemst ég í svona vinnu? Ég get alveg verið dugleg í vinnunni eins og aðrir, er það ekki? Í Usa er tala um hinu vinnandi fátæku stétt en það hugtak er búið að viðgangast hér á Íslandi lengi. Já, ég er sammála þér, hvernig er hægt annað en að vera reiður!
Rakel Þórðardóttir (IP-tala skráð) 6.1.2011 kl. 12:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.