4.12.2012 | 22:03
Jólaţjófar
Hátíđir ţćr, er vér höldum hér í heimi, eru geislar nekkverir himinríkis dýrđar, og á sá mađur von, ađ hann muni komast til eilífs hátíđarhalds í samneyti allra heilagra annars heims, er hann heldur hér í heimi vel og grandvarlega hátíđir Krists Drottins og heilagra manna hans." (Íslensk hómilíubók)
Jólin eru ekki einkaeign kirkjunnar. Ţeir sem kynna sér sögu kristins jólahalds ţurfa hvorki ađ lesa lengi né mikiđ til ađ komast ađ raun um ađ kristnir menn fundu ekki upp jólin. Upplýsingar um fćđingardag Jesú Krists eru mjög af skornum skammti og allnokkuđ var liđiđ á kirkjusöguna ţegar kirkjan fór ađ halda hann hátíđlegan. Ţegar ţađ gerđist urđu jólin fyrir valinu og síđan hafa flestir kristnir menn haldiđ jól sem fćđingarhátíđ frelsarans.
Ţađ hefur stundum orđiđ mönnum tilefni til ađ saka kristna menn um ţjófnađ. Hér á landi hefur ţví til dćmis veriđ haldiđ fram ađ kirkjan hafi stoliđ jólunum af heiđnum Íslendingum sem ađhylltust norrćnan átrúnađ.
En er víst, ađ norrćnir menn hafi veriđ fyrstir til ađ halda jól og fagna ţví ađ daginn tók ađ lengja á ný? Og ef svo er ekki, hvađan stálu ţeir ţá jólunum? Norrćnir menn voru alla vega ekki einir um ađ halda hátíđ um ţetta leyti ársins. Vítt og breitt um álfuna voru haldnar hátíđir tengdar vetrarsólhvörfum, gjarnan međ trúarlegu ívafi.
Gangur himintunglanna ákvarđar tímasetninar á mörgum af helstu trúarlegum hátíđum heimsins. Jólin miđast viđ sólina og páskarnir viđ tungliđ svo dćmi séu tekin. Ţađ er hvorki kristin né heiđin uppfinning heldur eitt af ţví sem einkennir átrúnađ mannkynsins og trúarhefđir ţess: Ţar er manneskjan sett í hiđ stóra samhengi alheimsins og ţeirra lögmála sem ţar ríkja.
Ţessi notkun á árstíđum, sól og tungli er eitt af ţví fjölmarga sem er samnefnari trúarbragđanna. Hitt er svo mismunandi hvernig trúarbrögđin spila á ţetta hljóđfćri himintunglanna. Ţegar skammdegiđ hefur náđ hámarki og styttist aftur fagna kristnir menn fćđingu Jesúbarnsins. Ađrir gera eitthvađ annađ í tilefni ţeirra tímamóta. Og allir eru í sínum fulla rétti til hátíđa ţví ţótt menn séu duglegir ađ slá eign sinni á hin ýmsu fyrirbćri heimsins hefur engum enn sem komiđ er tekist ađ fá viđurkennt eignarhald á sólinni, tunglinu eđa á mönduhalla jarđar. Ţetta eiga allir menn jafnmikiđ. Eđa réttara sagt jafnlítiđ.
Kristnir menn nota tónlist óspart viđ helgihald. Ţó er óumdeilt, ađ tónlistin er ekki kristin uppfinning. Engum dytti samt í hug ađ saka kristna menn um ađ hafa stoliđ tónlistinni. Hún er sameign mannkyns og öllum frjálst ađ nota hana og njóta hennar.
Gangi ykkur svo vel ađ undirbúa jólin ykkar!
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.