Kirkjulistavika

KirkjulistavikaÞað fer vel á því að nota 1. maí til að minna á Kirkjulistaviku sem nú er hafin í Akureyrarkirkju. Slíkur viðburður krefst mikillar vinnu fórnfúss fólks og réttlátustu launin sem það getur hugsað sér er að sem flestir njóti.

Kirkjulistavika er nú haldin í 10. skiptið. Frumkvöðull hennar er Björn Steinar Sólbergsson, organisti Akureyrarkirkju. Vikan hófst 28. apríl með opnun myndlistarsýningar í Ketilhúsinu og var þeim listamönnum sem tekið hafa þátt í Kirkjulistaviku frá upphafi boðin þátttaka. Fimmtán þeirra sýna verk sín núna.

Á sunnudaginn var fjölskylduguðsþjónusta í kirkjunni með miklum söng barnakóra kirkjunnar og eftirminnilegum flutningi á leikprédikun eftir sr. Sólveigu Höllu Kristjánsdóttur. Á eftir var grillað í sólinni fyrir framan Safnaðarheimilið undir drynjandi rokktónlist unglingabands og hlátrum barnanna í hoppukastalanum á kirkjuhlaðinu. 

Um kvöldið var æðruleysismessa í kirkjunni. Þar talaði annar frumkvöðull, sr. Jóna Lísa Þorsteinsdóttir, en hún stóð fyrir fyrstu æðruleysismessunni á Íslandi í Akureyrarkirkju fyrir bráðum 10 árum. Í messunni var sunginn sálmur eftir bróður Jónu Lísu, Þorvald Þorsteinsson, sem hann gaf systur sinni á merkisafmæli hennar fyrir ekki svo ýkja löngu. Flytjandi var skólabróðir okkar Þorvaldar, Hermann nokkur Arason, og hann gerði ennfremur snoturt lag við sálminn. Hemmi Ara er algjörlega minn maður og öndvegi trúbadoranna.

Síðar um daginn var svonefnd 19. aldar messa í Minjasafnskirkjunni sem dáindismennirnir sr. Óskar Hafsteinn Óskarsson og Eyþór Ingi Jónsson, organisti, stóðu að ásamt Hymnodiu, kammerkór Akureyrarkirkju og Minjasafninu. Því miður komst ég ekki til þeirrar athafnar en heyri að hún hafi tekist prýðilega og menn hafi jafnvel tekið hressilega í nefið að þeirrar aldar hætti.

Margt er framundan, en hæst ber hátíðartónleika í Akureyrarkirkju þar sem fram koma Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, Kór Akureyrarkirkju og Kammerkór Norðurlands. Þeir verða á sunnudaginn næsta kl. 16. Um morguninn er kantötuguðsþjónusta í kirkjunni. Þar prédikar dr. Gunnar Kristjánsson, prófastur (okkar doktor Gunni).

Nánari upplýsingar um dagskrá vikunnar má finna á heimasíðu kirkjunnar, akirkja.is.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mikið hefði verið gaman að komast í 19. aldar messuna. Slæmt líka að missa af hátíðartónleikunum. Hins vegar hef ég komist að því að í kirkjunum hérna í kringum mig er mikið um tónlistarviðburði, og ætla ég að vera dugleg að sækja þá þegar um hægist hjá mér. Fátt er meira róandi fyrir sálina, en þægileg tónlist :)

Þorgerður (IP-tala skráð) 1.5.2007 kl. 23:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband