9.11.2007 | 16:01
Við Petrea
Í dag var jarðsungin frá Akureyrarkirkju Petrea Guðný Konráðsdóttir.
Um það bil mánuður er síðan Petrea kom til mín og lagði línurnar um athöfnina en hún var með ólæknandi sjúkdóm.
Petrea var ljósmóðir og af ætt yfirsetukvenna. Hún tók á móti mér þegar ég fæddist og vel við hæfi að hún fengi sína hinstu þjónustu af þeim sem hún veitti þá fyrstu.
Segir það sína sögu um samhengi lífsins og hringrás.
Petrea kvaddi heiminn þar sem ég leit hann, á sjúkrahúsinu á Akureyri.
Hún andaðist 29. október síðastliðinn.
Ég fæddist 29. október 1960.
Athugasemdir
Að hittast og kveðjast, lífsins saga. Við sumt fólk hefur maður þó alveg sérstök tengsl í gegnum alla ævina, þráðurinn slitnar ekki.
Greta Björg Úlfsdóttir, 9.11.2007 kl. 16:44
Fullkominn hringur.
krossgata, 9.11.2007 kl. 17:00
Vá þetta er alveg hreint ótrúleg "tilviljun". Ég veit að Petrea var vinkona ömmu, hvíli hún í friði.
Darri Rafn Hólmarsson, 11.11.2007 kl. 00:16
Ég votta þér samúð. Sérstakt þetta með dagsetningarnar.
alva (IP-tala skráð) 14.11.2007 kl. 00:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.