16.12.2007 | 17:47
Jólakort á kortajólum
Af forsjálni ég fyrirbyggi skort
með fjármagn rúmt og góðan höfuðstól
og hef til reiðu öll mín kreditkort
svo keypt ég geti efnishyggjujól.
Í búðarhillu sé ég góða gjöf
og greiðsluna á Vísarað ég set
því þannig næst á skuldaskilum töf
og skrimt til vors með naumindum ég get.
Mitt hangilær ég kaupi út á krít
og klæðin ný á afborgunum fæ.
Þótt sífellt aukist eyðslu minnar hít
ég upp í geð á skuldunautum hlæ.
Og þegar heimild hver er nýtt í topp
og hækkun yfirdráttar vonlaust mál,
þá loksins fæ ég frið í lúinn kropp
og fróun minni kröfuhörðu sál.
Svo klingja bjöllur, klukkan verður sex,
við kyrjum sálminn góða "Heims um ból",
þá óróleikinn innra með mér vex
því enn ég skulda síðastliðin jól.
SAJ
Athugasemdir
Skemmtileg vísa um VISA og vel ort eins og við er að búast! En hlær ekki skuldarinn að lánadrottnum - frekar en skuldunautum..? Eða er ég að miskilja? Með kærum bw.kveðjum! Skúli
Skúli S. Ólafsson (IP-tala skráð) 16.12.2007 kl. 18:26
Það er miklu meira kúl að hlæja upp í opið geðið á skuldunuautum en lánadrottnum. Þá er iðrunarleysið algjört.
Svavar Alfreð Jónsson, 16.12.2007 kl. 19:06
Finnst þú ættir að endurskoða þetta! Sé ekki alveg lógíkina.
Ef þetta verður jólasálmur í sálmabók 21. aldarinnar mun ég leggja út af þessu einhvern tímann í jólapredikun. :>)
Skúli S. Ólafsson (IP-tala skráð) 16.12.2007 kl. 19:54
Lógíkin gæti verið: Ég ber mig svo vel og er svo forhertur að ég finn ekki einu sinni til með þeim sem eru í sama skítnum og ég. Hitt er bara fyrirsjáanlegt. Ég á síður von á að þetta kvæði komist í sálmabókina en færi vel á því að flytja það landsins skuldunautum og yfirdráttarkvígum.
Svavar Alfreð Jónsson, 16.12.2007 kl. 21:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.