Grímseyskur jólastrútur

struturÍ vikunni hitti ég vin minn úr Grímsey í Bónus. Ég sýndi honum hróđugur feng minn í mínum innkaupavagni:

Eitt risavaxiđ skagfirskt lambslćri, einn 6 kílóa kalkúni, tvćr temmilegar hangikjötsrúllur og myndarlegur konfektkassi.

Spurđi svo og sagđi svo hvađ ţeir ćtluđu ađ snćđa ţessi jólin undir norđurheimskautsbaugnum.

Grímseyingurinn sagđist vera í strútsleit.

Allt er ađ breytast í veröldinni. Líka jólasteikin. Í mínu ungdćmi (og er ég ţó ekki gamall) voru rjúpur, svín eđa lömb snćdd undir hátíđartóni séra Bjarna snemma á ađfangadagskvöldi.

Nú á dögum hafa menn á jóladiskunum rjúpur, svín og lömb og ţar ađ auki dádýr, krónhirti, nýsjálenska tudda, hreindýr, kengúrur, fasana, akurhćnur, krókódíla og strúta.

Fyrir jólin minna frystiborđ matvöruverslananna alltaf meira og meira á örkina hans Nóa.

Ţetta er sko fjölmenning sem bragđ er ađ.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 identicon

Fyrir jólin minna frystiborđ matvöruverslananna alltaf meira og meira á örkina hans Nóa.

Ég var nćstum dottin af stólnum ég hló svo innilega. Takk fyrir ţađ, ţađ var gott.

Hildur Inga Rúnarsdóttir (IP-tala skráđ) 20.12.2007 kl. 20:32

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Gleđileg jól og ţakkir fyrir áriđ sem er ađ líđa.

Jóhann Elíasson, 22.12.2007 kl. 09:52

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband