19.2.2008 | 08:20
Himnaríki og helvíti
Himnaríki getur hellst yfir okkur hér á jörðu í hinum ólíklegustu aðstæðum, rétt eins og andstæða þess, helvíti, gerir vart við sig jafnvel þar sem maður á síst von á því.
Þó að við getum fundið himnaríkið hér og nú er sú kenning stundum misskilin. Við höldum að himnaríki sé bara ástand. Það sé enginn staður. Fyrir löngu fór úr tísku að tala um himnaríkið sem stað. Himnaríkið er einhvers konar alsælufyrirbrigði. Óáþreifanlegt. Óhlutlegt. Ó-orð og búið er að koma því inn í hausana á okkur að hættulegt sé að elska það og þrá.
Aðdáendur himnaríkis eru sagðir sekir um að vilja flýja raunveruleikann.
Þess vegna hræðast margir himnaríki meira en helvíti. Taka sér heiti þess síðarnefnda oftar í munn en þess fyrrnefnda. Alsiða er að segja þeim sem maður á eitthvað sökótt við að fara til helvítis. Hitt er sjaldgæft að heyra þeim óskað himnaríkis sem gert hefur eitthvað vel.
Vinsælt er að benda á að fyrr á öldum hafi kirkjan notað helvítisóttann til að hotta fólki inn í himnaríkið.
Það er ekkert að því að óttast helvíti og reyna að forðast það í öllum þess myndum.
Myndin verður skökk ef við förum að óttast helvíti meira en við elskum himnaríkið.
Gæti það ekki verið eitt ógnarmein á okkar tímum að við látum stjórnast af óttanum við vonda staðinn en kunnum svo illa að elska þann góða?
Athugasemdir
Sumir segja að þegar búið er að fjarlæga hismið frá kjarnanum séu í raun allar okkar tilfinningar byggðar á tveimur grunntilfinningum sem eru andstæður: ótti og ást
Listin að lifa felst m.a. í því að láta ekki óttan stýra sér, heldur finna leið til að lifa lífinu sem mest í þeim jákvæðu tilfinningum sem eiga sér uppsprettu í kærleikanum.
Auður H Ingólfsdóttir (IP-tala skráð) 19.2.2008 kl. 11:17
Erum við ekki stödd í helvíti miðju og höfum það daglega fyrir ásjónum okkar? Hvað með Írak og Afganistan, hvað með Darfur og þær þúsundir, sem daglega láta lífið í blóðugum átökum? Árleg vopnaframleiðsla heimsins samsvarar þeim kostnaði, sem þyrfti til alls rekstrarkostnaðar Sameinuðu þjóðanna í hundrað ár og gott betur. Það eitt segir mér, að e-ð mikið er að og að helvíti á Jörðu er staðreynd.
Ásgeir Kristinn Lárusson, 19.2.2008 kl. 11:35
Farðu til himnaríkis!
Sigurður Þór Guðjónsson, 19.2.2008 kl. 17:00
Og farðu sjálfur til himnaríkis!
Svavar Alfreð Jónsson, 19.2.2008 kl. 20:56
Er ekki himnaríki innra með ykkur, strákar? Og andstæðan í kollinum?
Auðun Gíslason, 19.2.2008 kl. 21:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.