Lifi tónlistin!

musicÉg er ekki í vafa um að Friðrik Ómar og Regína Ósk munu standa sig frábærlega í kvöld. Ég spái þeim velgengni.

Auðvitað eru þau uppáhaldið mitt. Síðan Albanía.

Svo er ég voða þakklátur fyrir að heyra sungið á ítölsku á ný - þó að ekki þurfi nema að tala ítölsku til að syngja hana. Hún er syngjandi mál.

Hann spáir líka vel. Það á að vera sól og blíða hér næstu dagana. Júróvisjónpartíið verður grillveisla. Hálfur gangur undan íslensku fjallalambi verður snæddur undir keppninni.

Það þykir pínulítið ófínt að gangast við því að hafa gaman af söngvakeppninni, alla vega í vissum kreðsum.

En ég hef voða gaman af henni. Þótt fæst laganna séu að mínum smekk er þetta sjónar- og tónaspil. Veisla fyrir augu og eyru. Það er kappfaktor í þessu. Þjóðremba.

Keppnin sameinar fólk, kallar það saman. Það nýtur þess ekki bara að fylgjast með lögunum heldur ennfremur samfundanna hvert við annað í söngvakeppnishófunum öllum, smáum sem stórum.

Ég hylli tónlistina.

Þetta segir Marteinn Lúther um hana:

"I, Doctor Martin Luther, wish all lovers of the unshackled art of music grace and peace from God the Father and from our Lord Jesus Christ!

I truly desire that all Christians would love and regard as worthy the lovely gift of music, which is a precious, worthy, and costly treasure given to mankind by God.

The riches of music are so excellent and so precious that words fail me whenever I attempt to discuss and describe them.... In summa, next to the Word of God, the noble art of music is the greatest treasure in the world. It controls our thoughts, minds, hearts, and spirits...

Our dear fathers and prophets did not desire without reason that music be always used in the churches. Hence, we have so many songs and psalms.

This precious gift has been given to man alone that he might thereby remind himself that God has created man for the express purpose of praising and extolling God.

However, when man's natural musical ability is whetted and polished to the extent that it becomes an art, then do we note with great surprise the great and perfect wisdom of God in music, which is, after all, His product and His gift; we marvel when we hear music in which one voice sings a simple melody, while three, four, or five other voices play and trip lustily around the voice that sings its simple melody and adorn this simple melody wonderfully with artistic musical effects, thus reminding us of a heavenly dance, where all meet in a spirit of friendliness, caress and embrace.

amen2A person who gives this some thought and yet does not regard music as a marvelous creation of God, must be a clodhopper indeed and does not deserve to be called a human being; he should be permitted to hear nothing but the braying of asses and the grunting of hogs."

Þau Regína Ósk og Friðrik Ómar fá Amen dagsins frá Akureyri alla leið til Belgrad.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Áfram Ísland!

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 24.5.2008 kl. 13:06

2 identicon

Þetta var fráááábært hjá þeim R og F og mér finnst júróvisíon barasta skemmtileg, já og sameinar evrópubúa.

Áfram ...og stel fánanum líka, þá er þetta orðinn svona raðþjófnaður við vorum flottust í kvöld.

Takk fyrir bloggvinskapinn.

alva (IP-tala skráð) 25.5.2008 kl. 01:43

3 Smámynd: Óskar Arnórsson

Sæll Svavar! Komin til Íslands aftur eftir maraþonferð um öll Norðurlönd! Kann því miður ekki nóg á tölvu til að setja myndir eða flögg. Veit heldur ekki fyrir hverju að flagga.

Sammála þessu að músik hefur næringargildi og nota ég það óspart. langaði bara að segja þér að ég er búin að finna einn alvöruprest í viðbót! Alvöru kristinn og er búin að lesa næstum hálfa Biblíunna.

Ætla samt ekkert að hafa neina skoðun á henni því ég skil ekki nema sumt af því sem stendur þar. Sef alla vega betur, enn núna er svefntruflanatímabil sem ég kenni ferðalaginu um að hluta um.

Slappa af með því að blogga og er ekki alveg eins ruddalegur og ég var þegar ég byrjaði að blogga, enn það koma samt tímabil. Þakka það lestrinum sem er reyndar hálfgert puð. Öll númerinn trufla lesturinn mest...í Biblíunni sem ég les á sænsku. Skil það alla vega betur. Reyndi íslensku útgáfuna enn gafst upp strax.

Hef annars ekkert að segja nema ég sagði hinum prestinum frá þér að það væru til alvöruprestar sem ég var búin að gefa algjörlega upp á bátinn fyrir mörgum árum.

Svo ertu með húmor sem ég hélt í alvörunni að væri bannað að hafa ef maður væri prestur...takk fyrir allt...

PS. Horfi aldrei á Júróvisón, bara les bækur og horfi á einstaka DVD mynd.. 

Óskar Arnórsson, 26.5.2008 kl. 03:42

4 Smámynd: Svavar Alfreð Jónsson

Velkominn heim, Óskar.

Þú segist ekki skilja nema sumt af því sem þú lest í Biblíunni.

Einhvers staðar sá ég haft eftir manni að hann það væri ekki það sem hann skildi ekki í þeirri góðu bók sem væri það versta, hann væri þvert á móti í mestum vandræðum með það sem hann skildi!

Gangi þér vel!

Svavar Alfreð Jónsson, 26.5.2008 kl. 08:19

5 Smámynd: Óskar Arnórsson

Takk Svavar fyrir fráfært svar!

þessu náði ég alla vega! Ég er í tómu basli að fylgja betri vitund í allskonar málum. mest smáatriðið í daglega lífinu sem ég VEIT að hafa mikla þýðingu. ég kem mér undan skyldum gagnvart mér sjálfum sem eru einföld og ég ég fresta hlutum þar til ég verð stressaður og geri ótrúlegustu hluti í stresköstum! það er bara eitt dæmið.

Svo þessi svefntruflanatímabil sem ég er búin að vera með í 30 ár!  Alveg dæmalaust þreytandi og verða leiðinlegri og leiðinlegri. vaka í 2 sólarhringa og sofa í 5 tíma og svo ný törn. Stendur yfir í svona 2 vikur og svo geta liðið margir mánuðir þangað til þetta byrjar allt upp á nýtt.

Enn þetta"að vera í mestum vandræðum með það sem maður skilur á svo sannarlega við mig!" Kanski ætti ég að hætta að reyna að skilja meira og einbeita mér að því sem ég skil nú þegar! kl. er orðinn 08.30 og kominn háttatími hjá mér.

Sólarhringurinn stendur á haus eins og allt þessa stundina. tak aftur fyrir vitur orð. Hrifin af þessu. Einfaldara enn að puða með Biblíunna...skil hana hvort eð er ekki..nema einstaka setningar...   

Óskar Arnórsson, 26.5.2008 kl. 08:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband