25.6.2008 | 22:43
Jónsmessusólin
Undanfarið hefur diskurinn Home með The Corrs verið í spilaranum á Volvó mínum og ég er með lagið Buachaill ón Éirne gjörsamlega á heilanum.
Gelíska er annarleg tunga sem ég skil ekki baun í en mér finnst hún fallegt söngmál.
Smám saman hefur orðið til örlítið kvæði við þetta lag. Það er svona:
Jónsmessusólin í hæðunum hörund mitt þvær
og hamingjusprotanum brosandi á lífríkið slær,
úr ljósárafjarlægð hún hittir í mosanum maur.
Þú, maríuerla, ert drottning á girðingarstaur.
Sýp ég á víni hins áfenga angandi lyngs,
með augunum drekk ég af staupi míns sjóndeildarhrings.
Á netinu könguló spinnur sitt blíðviðrisblogg
en bragsmiðsins vorboðinn ljúfi er ybbandi gogg.
Hægt er að hlusta á lagið hér fyrir neðan.
.
Athugasemdir
alva (IP-tala skráð) 25.6.2008 kl. 23:55
Sæll!
Hef einmitt verið að hlusta mikið á gelíska tónlist og hún hrífur mig töluvert. Þetta er náttúrulega frábært lag og vel við hæfi að skella þessu góða kvæði við. Kveðja úr blíðunni hér syðra..
Sveinn Arnar Sæmundsson, 26.6.2008 kl. 15:04
Fallegt lag og ljóðið alveg frábært. Mér tókst að syngja það með í fyrstu tilraun.
Húnbogi Valsson (IP-tala skráð) 26.6.2008 kl. 18:53
Mjög fallegt lag og gelískan hljómar vel þótt ég skilji ekki baun. Söng með og textinn þinn fellur að laginu eins og flís í rass! Það rofaði til í mínum ofnæmishaus og það gleður! Takk!
Freyja, 26.6.2008 kl. 21:08
Aida., 27.6.2008 kl. 10:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.