Moskur á Íslandi

moskaSamkvæmt könnun á visir.is eru 68% svarenda á móti því að leyfð verði bygging mosku í Reykjavík.

Yfirvöld í okkar heimshluta hafa áhyggjur af vaxandi íslamófóbíu. Alls konar vænisýki í garð trúarbragðanna grefur um sig.

Öfgafólk hefur alltaf verið til, bæði innan trúarbragða og stjórnmálahreyfinga en vænisjúkir Evrópubúar sjá hryðjuverkamenn í öllum múslimum.

Ekki er ég múhameðstrúar en ég finn til með fórnarlömbum slíkra fordóma.

Þeir eru ein tegund ofbeldis og vatn á myllu æsingamanna.

Mér finnst ekki nema sjálfsagt að íslenskir múslimar fái að koma sér upp aðstöðu til trúariðkunar. Það er hluti af mannréttindum þeirra.

Stundum er gripið til þeirra raka gegn moskubyggingum á Íslandi að í sumum múslimaríkjum sé kristnum bannað að byggja kirkjur.

Það eru engin rök í málinu. Alla vega ekki kristnum manni.

Jesús sagði ekki:

"Allt sem aðrir menn gera yður, það skuluð þér og þeim gera."

Heldur:

"Allt sem þér viljið að aðrir menn geri yður, það skuluð þér og þeim gera."

Á þessu tvennu er býsna mikill munur.

(Myndin með færslunni gæti verið af íslenskri mosku. Það er á henni snjóföl.)

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sammála þér í öllu að ofan Svavar. Einu get ég bætt við. Þar sem Krossinn og fleiri trúfélög fengu að byggja sér aðstöðu af hverju ættu múslimar ekki að fá það.

Þorvaldur Þórsson (IP-tala skráð) 24.9.2008 kl. 16:49

2 identicon

Hver elur hér á tortryggni í garð Íslams?

Hver er framtíð kristni? Hvað um niðja okkar, börn okkar og afkomendur? Hver verður þeirra trú? Mun Islam leggja álfuna undir sig? Kristni hopar í Evrópu. Fyrir Islam og fyrir guðleysi og tómhyggju. Hvað þarf til að snúa þeirri þróun við? Eða er okkur alveg sama? Ég vona ekki.

Er ekki fullkomlega rökrétt að þeir sem heyra þennan boðskap setji sig upp á móti moskubyggingu til að verja kristni?

Óli Gneisti (IP-tala skráð) 24.9.2008 kl. 17:03

3 Smámynd: Svavar Alfreð Jónsson

Fólk er held ég að velta fyrir sér ofangreindum spurningum, Óli Gneisti, og ég hef svo sem ekki mestar áhyggjur af þeim. Það eru hugsanleg svör sem ég hef meiri áhyggjur af.

Svavar Alfreð Jónsson, 24.9.2008 kl. 17:17

4 identicon

Hvað áttu við? Finnst þér allt í lagi að biskupinn þinn ali á tortryggni?

Óli Gneisti (IP-tala skráð) 24.9.2008 kl. 18:20

5 Smámynd: Svavar Alfreð Jónsson

Ég tel alla vega að til séu skýrari dæmi um það að ala á tortryggni í garð múslima en þessar spurningar.

Ég veit ekki í hvaða samhengi þær voru fram bornar en er ekki viss um að byggingarleyfi fyrir mosku á Íslandi hafi verið tilefni þeirra.

Svavar Alfreð Jónsson, 24.9.2008 kl. 18:39

6 identicon

Tilgangurinn er skýr og það er búa til vígalínur. Þeir og við. Þetta er leið til að reyna að fylkja fólki á bak við kirkjuna með því að mála skrattann á vegginn. Hann er eins og Frjálslyndir að þessu leyti, hann er að reyna að skora stig með því að espa fólk upp í tortryggni. Hann fer líka með prestslega leið með því að nota dylgjur en ekki rök.

Óli Gneisti (IP-tala skráð) 24.9.2008 kl. 19:29

7 identicon

Heyrðu Svavar!  68% segir nei! Og þá segjum við NEI! Ég hef enga þolinmæði gagnvart þessu fólki! Öfgafullt eða ekki! Vil ekki sjá þessa mosku.

Þröstur (IP-tala skráð) 24.9.2008 kl. 19:39

8 identicon

Þröstur: Trúfrelsi er grundvallarmannréttindi. Þetta er ekki spurning um meirihluta eða minnihluta.

Óli Gneisti (IP-tala skráð) 24.9.2008 kl. 19:45

9 Smámynd: Svavar Alfreð Jónsson

Ég er nú ekki sammála þessum ritskýringum þínum, Óli Gneisti, en mér finnst gott að heyra að þér finnist ámælisvert að "espa fólk upp í tortryggni".

Svavar Alfreð Jónsson, 24.9.2008 kl. 19:48

10 Smámynd: Svavar Alfreð Jónsson

Til að fyrirbyggja misskilning: Svar mitt hér fyrir ofan var við athugasemd Óla Gneista frá 19:20. Ég tek að fullu undir síðustu athugasemd hans.

Svavar Alfreð Jónsson, 24.9.2008 kl. 19:52

11 identicon

Þarf maður að hlusta á biskup í ljósi Krists og reyna að eins og mögulegt er að sjá ekki ljóta boðskapinn sem frá honum kemur?

Manstu þegar hann sagði að trúleysi ógnaði mannlegu samfélagi?

Óli Gneisti (IP-tala skráð) 24.9.2008 kl. 19:56

12 Smámynd: Svavar Alfreð Jónsson

Mér fyndist nú ástæða til að tortryggja biskup sem fyndist trúleysi æskilegt - þótt deila megi um þann búning sem menn velja orðum sínum.

En við skulum halda okkur við efnið, Óli Gneisti, þótt augljóst sé að þér er Karl biskup afar hugleikinn.

Svavar Alfreð Jónsson, 24.9.2008 kl. 20:08

13 identicon

En væri biskup sem þætti Íslam æskilegt tortryggilegur?

Óli Gneisti (IP-tala skráð) 24.9.2008 kl. 20:11

14 identicon

Þetta er aldeilis kostulegt. Þú skrifar um að fordómar gagnvart islam séu slæmir en smellur allur í vörn þegar þér er bent á fordómafull orð bislupsins þíns í garð islam.

Skyndilega tengjast orð biskups ekki hugleiðingu þinni. Þótt þau séu að sönnu íslamófóbísk og fordómafull.

Teitur Atlason (IP-tala skráð) 24.9.2008 kl. 20:26

15 Smámynd: Svavar Alfreð Jónsson

Trúleysi er æskilegt fyrir þá sem aðhyllast það. Og íslam fyrir þá sem það aðhyllast.

Mér fyndist samt sá biskup ekki beinlínis sannnfærandi sem færi að boða íslamstrú.

Ég er ósammála bæði múslimum og trúleysingjum um margt en virði afstöðu þeirra og finnst sjálfsagt að menn hafi aðstöðu til að iðka sín trúarbrögð eða trúleysi.

Svavar Alfreð Jónsson, 24.9.2008 kl. 20:27

16 identicon

Nei... Óli.. Þetta er spurning um almenna skynsemi! Eitthvað sem vantar greinilega í ykkur báða! En það er alveg ljóst að þið eruð góðir að deila við hvorn annan þannig að ég bið ykkur vel að lifa...

Þröstur (IP-tala skráð) 24.9.2008 kl. 20:32

17 identicon

Verst að þú ert ekki biskup.

Óli Gneisti (IP-tala skráð) 24.9.2008 kl. 20:41

18 identicon

http://www.thereligionofpeace.com/  - samantekt á staðreyndum.

Síða með efni um allt það sem þú þarft til að skilja að "umburðarlyndi" þitt er stórhættulegt þér og öðrum.   

Skuli (IP-tala skráð) 24.9.2008 kl. 22:39

19 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

sammmála þínum pistli

Hólmdís Hjartardóttir, 25.9.2008 kl. 02:29

20 identicon

Þröstur, okkar gildi eru gildin sem franska byltingin byggði á. Þaðan koma hugmyndir okkar um mannréttindi, tjáningarfrelsi, skoðanafrelsi og trúfrelsi.

Óli Gneisti (IP-tala skráð) 25.9.2008 kl. 08:00

21 identicon

Án þess ég sé að setja mig upp á móti moskubyggingunni þá verð ég að benda á eitt: þið getið ekki stillt upp íslam og kristni sem sambærilegum trúarbrögðum eða sem trúarbrögðum eingöngu, íslam er miklu pólitískara og veraldlegra en kristni og sumsstaðar er sú pólitík ærið vafasöm. Í sumum moskum er predikað eitthvað sem er engu skárra en málflutningur þýsku nasistanna. Ég er engan veginn að gera því skóna að slík innræting eigi eftir að fara fram í moskum á Íslandi, en þarna liggur óttinn, reynslan sýnir að hann er engan veginn ástæðulaus.

ábs (IP-tala skráð) 27.9.2008 kl. 00:46

22 Smámynd: Ragnar Kristján Gestsson

Til þín Óli, ef ég man rétt byggði franska byltingin á blóðsúthellingum og gífuryrðum í garð þeirra hópa sem hún vildi fá frelsi frá: hengjum hinn síðasta aðalsmann í görnum hins síðasta prests.  Á þessum grundvelli var frelsið fengið.  En ég held að vestrænar þjóðir sitji alls ekki jafnar til borðs með múslimskum löndum.  Flestar þeirra síðarnefndu láta þau réttindi og frelsi sem eiga hug þinn (og minn) sem vind um eyrun þjóta, og öll sambúð við svona ólíka hópa þarf að skoða með mikilli varúð.  Hvaða reglur látum við gilda í samskiptum beggja sem báðir virða?

Ragnar Kristján Gestsson, 29.9.2008 kl. 21:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband