Dýrlingar túrbókapítalismans

prinsmarkusÍ nýjasta Spiegel las ég um prins Markús. Hann á 1000 fermetra hús í heimabæ sínum, Pforzheim í Þýskalandi. Annað jafn stórt í Los Angeles. Eitt 300 fermetra í Fort Lauderdale. Íbúðin hans við smábátahöfn í Dubai er ekki nema skitnir 180 fermetrar. Sú í Mónakó 140.

Hann á eina flugvél, ellefu mótorhjól og nokkra hraðbáta.

Hann er með tólf stykki lífverði.

Hann ætlaði að verða kjötiðnaðarmaður eins og pabbi. Lærði líka til kokks og lenti síðan í skemmtanabransanum eins og það er kallað.

Hann rekur nítján hóruhús. Þar "starfa" yfir þúsund konur.

Hann hét Marcus Eberhardt. Nú er hann búinn að kaupa sig inn í aðalinn. Zsa Zsa Gabor og maður hennar Friðrik frá Anhalt ættleiddu þýska slátrarann gegn hæfilegri þóknun.

Hans nýja nafn er prins Marcus Eberhard Edward von Anhalt.

Nýlega stóð prins Markús fyrir heilmiklum kappakstri. Lagt var af stað frá Cannes og keyrt til Muenchen. Gist á bestu hótelunum á leiðinni eftir að fólk hafði slett úr klaufunum á flottustu klúbbunum. Fimm lönd og fimm nætur.

Markús prins ók þessa leið á nýjum 670 hestafla Mercedes SLR sem kostaði 600.000 evrur. Hann var nýbúinn að eyðileggja gamla bílinn, Porsche sem var 750.000 evra virði.

Prinsinn vantaði fylgdarkonu. Honum fannst Pamela Anderson við hæfi og bauð henni far.

Pamela var til í tuskið. Ef send yrði eftir henni einkaþota til London.

Þar að auki fór hún fram á lífverði.

Item vodka, trönuberjasafa og krullujárn.

Og að dýraverndarsamtök fengju styrk.

Prinsinn gekk að þessu enda mikill dýravinur.

(Jafnframt tók hann fram að honum væri meinilla við atvinnulausa.)

Ég geri mér grein fyrir að kreppan er hvorki Markúsi prinsi að kenna né neyslu Pamelu á trönuberjasafa eða notkun hennar á krullujárnum.

En ein skýringin á kreppunni er ef til vill sú að þessar fígúrur hafa verið okkur fyrirmyndir.

Við vildum pínulítið verða eins og þau.

Alltént er gaman að spá í hvernig ástandið væri ef heilagur Frans hefði þótt jafn flottur og þessir dýrlingar túrbókapítalismans.

Myndin er af þeim skötuhjúum Markúsi og Pamelu í Bensinum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

... eyjan.is   og   visir.is   hafa mikinn áhuga á þessari konu og fylgjast með hverju fótmáli hennar. Fjölmiðlar nútímans: Fjórða valdið?

Rósa (IP-tala skráð) 2.10.2008 kl. 23:24

2 Smámynd: Björn Heiðdal

Ég held að skýringin sé ekki að við viljum verða eins og þau heldur að þau stjórna heiminum.  Þetta er liðið sem setur reglurnar og skammtar sér síðan peninga.

Björn Heiðdal, 3.10.2008 kl. 03:29

3 identicon

Svaðaleg saga Svavar, veit ekki hvort nokkurn langar að vera svona raunverulega. Ég hélt sattað segja að þetta værir þú í bílnum...já og sennilega BB

Kveðjur í bæinn YHH

Yrsa Hörn Helgadóttir (IP-tala skráð) 3.10.2008 kl. 08:34

4 Smámynd: Aida.

Góður punktur Svavar.

Aida., 5.10.2008 kl. 20:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband