Komdu fagnandi, vöruskortur!

nautatungaÞeir hafa áhyggjur af vöruskorti. Fólk er jafnvel hvatt til að fara að hamstra.

Ekki ætla ég að lofa skortinn en í stað þess að rjúka af stað í örþrifainnkaup fór ég að hugsa hvað gæti gerst.

Hvaða vöruskort er verið að tala um?

Þeir sem búið hafa úti á landi eru ekki óvanir vöruskorti.

Ég man þá tíð er kaupfélagsstjórinn í plássinu þar sem ég bjó hafði það gjörsamlega í hendi sinni hvað lenti á kvöldverðarborðum heimilanna.

Eftir langvarandi stórhríðar og samgönguleysi var nánast ekkert til í búðunum nema reyktar nautatungur og saltað hrossakjet.

Einu sinni fyrir páska var öll mjólk búin í búðunum. Seint á skírdagskvöld tókst skipi loks að sigla inn fjörðinn með kærkominn farm úr mjólkursamlaginu. Þá voru búðir opnaðar og seld mjólk og rjóminn á páskaterturnar.

Andlitin ljómuðu af gleði þegar fernurnar voru bornar út frá stoltum kaupmönnum.

Ég efast um að þeir hafi séð ánægðari viðskiptavini.

Þetta var ekkert vont í minningunni. Eiginlega bara yndislegt.

Hér með lýsi ég því yfir að ég er tilbúinn að takast á við tímabundinn vöruskort.

Ég fæ vatn í munninn þegar ég hugsa um saltað hrossakjöt og reyktar nautatungur. Þetta er herramannsmatur. Allt of langt er síðan svoleiðis var í matinn á mínu heimili.

Það hefur einfaldlega of margt annað verið til.

Og fáist ekki bensín mun ég ganga.

En vera heima ella.

Myndin er af kreppukrásinni vakúmpakkaðri nautatungu. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Ég er nógu gamall til að muna eftir árunum í kringum 1950 þegar voru biðraðir við búðir sem höfðu fengið eitthvað af vörum frá útlöndum og aðeins flutt inn epli um jólin. Nánast enginn bílainnflutningur var milli 1948 og 1954 og lítill 1957-1960. 

Þetta kom sér oft ekki vel en samt minnist ég þessara ára með söknuði. Skrýtið.  

Ómar Ragnarsson, 6.10.2008 kl. 02:01

2 Smámynd: Kjartan Pétur Sigurðsson

Það er lítil hætta á vöruskorti á Íslandi. Íslendingar eru þegar búnir að kaupa mest af því drasli sem þá langar til að eignast. Svo eru verslanir með risalager af öðru eins sem mun taka langan tíma fyrir landann að ganga á. Stærð verslunar er ekki í neinu samræmi við 320.000 manna þjóðfélag.

Kjartan Pétur Sigurðsson, 6.10.2008 kl. 08:06

3 identicon

Samkvæmt biblíunni þá átt þú að búa við skort allt þitt líf, staðreyndin er að biblían vill að þú losir þig við all og þá sérstaklega peninga.
Ef þú ert alvöru kristinn þá selur þú eigur þínar og gefur þær fátækum... þú hættir líka að taka laun fyrir að boða það sem stóri pabbi segir.
Þú hættir að plana þitt líf, lætur bara gudda bjarga þér fyrir horn ef hann nennir.

DoctorE (IP-tala skráð) 6.10.2008 kl. 11:02

4 identicon

Þetta er frábær hugleiðing. Sem leiðir hugann að því hvað stutt er í þunglyndi hjá okkur álendingum. Hvað við hröpum fljótt að áliktunum. Því miður oft röngum. Auðvitað eigum við nóg af öllu. Og of mikið af sumu. Nema ef vera skyldi bjartsýni og von.

Hallgerður Pétursdóttir (IP-tala skráð) 6.10.2008 kl. 12:49

5 identicon

,,,,Loksins getur maður gefið kerti og spil með góðri samvisku.......

Res (IP-tala skráð) 6.10.2008 kl. 18:30

6 Smámynd: Vésteinn Valgarðsson

Ég held ekki að það sé verið að tala um flatskjáaskort eða sportbílaskort hérna. Það drepur okkur ekki að skrúfa aðeins niður í neyslunni, en að vöruskortur skuli koma fagnandi -- það þykir mér óábyrgt tal.

Vésteinn Valgarðsson, 6.10.2008 kl. 18:40

7 identicon

Ættum við ekki að huga að þeim sem búið hafa við vöruskort í "góðærinu",ekki vegna þess að vörurnar hafi ekki verið til,heldur vegna þess að þeir hafa ekki átt fyrir þeim.Þá er ég ekki að tala um einhvern lúxusvarning,bara brýnustu nauðsynjar.Þessu fólki blæðir hrikalega núna.

Óskar (IP-tala skráð) 6.10.2008 kl. 20:32

8 Smámynd: halkatla

Já segðu þetta við fólk einsog mig sem borðar ekki venjulegan mat En mér er samt sama um kreppuna, ég fagna henni hvernig svosem fer fyrir mér

halkatla, 6.10.2008 kl. 21:37

9 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Sjá! Hinir efstu dagar eru upprunnir! Heimsendir er í nánd! Þá munu hinir rétttrúuðu og dásamlegu hólpnir verða og mala af frelsun og hamingju en hinir vantrúuðu og viðbjóðslegu munu til heljar hlammast og standa þar á höfði í vellanda víti frá eilífð til eilífðar!  

Sigurður Þór Guðjónsson, 7.10.2008 kl. 00:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband