6.10.2008 | 23:47
Kreppumolar
Ég hef verið að skoða hvað þeir segja um kreppuna úti í Evrópu.
Netútgáfur breskra blaða hafa fjallað töluvert um Ísland í því samhengi.
Þar er á einum stað bent á að Ísland fari fyrir öðrum í kreppunni.
Samkvæmt því erum við frumkvöðlar. Loksins.
Í hinu þýska Focus er talað um hrun evrunnar.
Æstur lesandi heimtar afnám hennar. Vill taka upp markið á ný.
Hljómar ekki ókunnuglega.
Nú er að deyja eða drepast eins og kallinn sagði.
Athugasemdir
Ég hlustaði nú á umræðuþátt á þýsku ríkisrásinni ARD fyrir nokkrum dögum og þar sögðu menn úr viðskiptalífinu og frá verkalýðsfélögum og úr stjórnmálum að evran hefði staðið sig ótrúlega vel í þessum ólgusjó.
Sérstaklega töluðu þeir um að minni löndin, sem hafa evruna, megi telja sig heppin, þar sem gjaldmiðlar þeirra landa hefðu án efa fallið mjög mikið ef ekki væri fyrir evruna.
Guðbjörn Guðbjörnsson, 7.10.2008 kl. 15:39
Við skulum vona að evran standi sig, Guðbjörn, hún hefur alla vega fram að þessu verið stöðugri en blessuð krónan okkar.
Svavar Alfreð Jónsson, 7.10.2008 kl. 16:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.