10.10.2008 | 20:36
Efnahagsbölsýnisíbyljan
Við hjónin ákváðum að horfa á blaðamannafund forsætisráðherra í dag. Komum okkur vel fyrir í sófanum með nýlagað kaffi. Ræstum viðtækið. Klukkan var ekki alveg orðin fjögur. Myndin úr Iðnó var ekki komin en lag var leikið fyrir spennta áhorfendur.
Við sperrtum eyrun.
"Þetta reddast, já það reddast," sungu þeir í Ríó tríóinu rétt áður en öðlingarnir Geir og Björgvin gengu í salinn.
Mér barst saga. Hún er einhvern veginn svona:
Gamla fólkið á elliheimili úti á landi var orðið afar þrúgað og meðtekið af efnahagsbölsýnisíbyljunni í fjölmiðlunum.
Forstöðukonan hafði sverar áhyggjur af þessu.
Í morgun var leikfimi á heimilinu. Forstöðukonan bað íþróttafræðinginn að vera nú heldur á léttu nótunum og fyrir alla muni ekki minnast á efnahagsmál eða þrengingar.
Þetta væri alveg að fara með gamla fólkið.
Íþróttafræðingurinn sagði það ekki nema sjálfsagt.
Svona hóf hann tímann:
"Kæru vinir! Í dag byrjum við á mjög léttri æfingu. Við réttum hendur út frá hliðunum, beygjum olnbogana og bönkum flötum lófum létt á bringuna, síðan réttum við úr höndunum og kreppum snöggt hnefana og endurtökum allt aftur og aftur," og svo hrópaði hann:
"Koma svo! Banka - kreppa, banka - kreppa, banka - kreppa......!"
Athugasemdir
Góður.
Valsól (IP-tala skráð) 10.10.2008 kl. 23:35
Vilborg Eggertsdóttir, 11.10.2008 kl. 14:15
Sigrún Jónsdóttir, 12.10.2008 kl. 00:11
Það er góð morgunæfing,og það ættu allir að gera!
Njóttu dagsins, og fáðu þér endilega annan kaffibolla.
Halldóra Lára Ásgeirsdóttir, 12.10.2008 kl. 09:57
Frábært
kveðja Kolla
Kolbrún Stefánsdóttir, 12.10.2008 kl. 10:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.