14.10.2008 | 00:12
Forleikur að stríðsyfirlýsingu
Í dag birtist á vefmiðlinum spiked grein eftir ritstjóra hans Brendan O´Neill, einn hvassasta þjóðfélagsrýni Breta.
Greinin nefnist Britain vs Iceland: after the Cod Wars, the 'Wad Wars' og hefst á þessum orðum:
Never mind North Korea. Forget Iraq or Iran. Don't worry about Afghanistan, where according to one newspaper columnist the only solution, seven years after the British/American invasion, is a form of controlled warlordism' (1). No, Britain has a far larger enemy on the horizon: Iceland. Population 304,367. A country famed for its fishing, geysers, and indie music. The only country in Europe with no standing army. The only country in the world where the prime minister's phone number is listed in the directory. And a country which, according to British ministers, is behaving like a rogue regime.
O´Neill gagnrýnir bresk stjórnvöld harðlega fyrir framkomuna við Íslendinga og segir að fyrr á tíð hefðu ummæli breskra ráðamanna og aðgerðir jafngilt forleik að stríðsyfirlýsingu (a prelude to declaring war).
Hið bága ástand á Íslandi telur O´Neill sýna að alþjóðlegar stofnanir hafi brugðist. Það hafi heldur ekki hjálpað landinu að vera aðili að alþjóðlegum samtökum. Ísland hafi ekki getað reitt sig á vinaþjóðir þegar á reyndi.
Hann telur viðbrögðin við fjármálakreppunni í heiminum stjórnast af skammtímasjónarmiðum og þau séu ekki líkleg til að koma á efnahagslegum stöðguleika til langframa.
Rimman milli ríkisstjórna Íslands og Bretlands sýnir að nú hefur þeim reglum snarfækkað sem eiga að stjórna samskiptum ríkja, segir O´Neill ennfremur.
Greinin er vel lestrarins virði.
Athugasemdir
Ég fjallaði einmitt af fúlustu alvöru um þetta sama mál um daginn í greininni Bretlandi er alvara
halkatla, 14.10.2008 kl. 00:20
Takk fyrir að benda á þessa stórgóðu grein. Sjálfur hef ég fengið nokkur símtöl frá félögum mínum í engilsaxlandi, sem að hljóða á sama veg.
Steingrímur Helgason, 14.10.2008 kl. 00:42
Það er tengd grein í Independent í svipuðum tón: <http://www.independent.co.uk/news/world/europe/welcome-to-iceland-despite-the-crunch-its-still-worth-a-visit-958591.html>
"But if there is anger here, consider the depths of humiliation being plumbed in Reykjavik. Not only has Iceland been forced to go begging to other Nordic countries, and to seek a massive rescue loan from Russia, it is mockingly being pointed out that the Finance Minister, Arni Mathiesen, has a master's degree in fish pathology from the University of Stirling rather than any qualification in economics.
If any dead cod was involved, presumably he would be able to tell us how it had met its end, but that might not be a lot of help in solving the country's almighty financial disaster."
Höfundur fer ekki inn á menntun seðlabankastjóranna, en hefði auðveldlega komist að álíka niðurstöðum varðandi hæfni þeirra og stöðumat.
Sveinn í Felli (IP-tala skráð) 14.10.2008 kl. 15:12
takk fyrir ábendinguna.
Salvör Kristjana Gissurardóttir, 14.10.2008 kl. 16:19
og ég vissi ekki einu sinni hvað rogue regime þýddi. Fletti því upp, hér er lýsingin http://www-personal.umich.edu/~rtanter/rrpage/
Salvör Kristjana Gissurardóttir, 14.10.2008 kl. 16:21
Nóbelsverðlaunahafi í hagfræði um samsæri gegn Íslandi!
Afsakið innrásina,mig langar að benda öllum sem hafa áhuga á ástandinu í þjóðfélaginu að lesa bloggið mitt. þar hef ég postað bloggi sem Paul Krugman, nóbelsverðlaunahafi i hagfræði talar um fjármálasamsæri gegn íslandi. Langar að fá álit samlanda minna því ég verð að segja að í dag hljómar þetta ansi kunnuglega.
Hippastelpa, 15.10.2008 kl. 00:00
Sæll vertu Svavar.
Kærar þakkir fyrir að benda á þessa grein, hún er góð, því hún bendir réttilega á að slagurinn milli ríkisstjórnar okkar og þeirrar Bresku hefur í raun ekkert með þjóðirnar að gera. Er í besta falli sandkassaslagur óþroskaðra og ódiplómatískra pólitíkusa.
Kveðja
Linda Samsonar Gísladóttir, 15.10.2008 kl. 20:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.