Ömurleiki dagsins

orbylgjuofnNú í vikunni, meðan milljónatrilljónir brunnu upp í gjaldþrota bönkum og mannaskipti urðu í æðstu veldisstólum veraldarinnar, gekk lífið að mestu sinn vanagang hér í Norðurbyggðinni.

Vanagangur sá hefst snemma dags með því að heimilisfólk rís úr rekkjum, gerir á sér morgunverkin, fær sér árbít og smyr nesti áður en hver heldur á sinn stað í skólum og vinnustöðum bæjarins. Jafnan gengur þetta stórslysalaust fyrir sig og af þokkafullri yfirvegun.

Miðvikudagurinn síðasti var þó undantekning frá því.

Þegar heimilisfaðirinn mætti í eldhúsið, úfinn og rauðeygður eftir annasamar kreppudraumfarir, gerðu hans eigin börn að honum hávær hróp. 

Ég hafði klúðrað gjörsamlega verslunarferðinni deginum áður og gleymt að kaupa helminginn af því sem vantaði í eldhússkápa og búrhillur. Þegar hungruð börnin hugðust ná sér í kornfleks í kornfleksskápinn störðu þau í holar tóttir. Þar að auki reyndust mjólkurbirgðir heimilisins ekki merkilegri en gjaldeyrisforði Seðlabankans fyrir hrunið.

Mér leið eins og Davíð og orðið "ÁBYRGÐ" stóð skrifað með stríðsfyrirsagnaletri á hrukkóttu enninu.

Ekki var um annað að ræða en að sneypast út í bíl og aka í næstu verslun að sækja fjölskyldunni þurftir.

Þannig er að eina búðin sem opin er á þessum tíma sólarhringsins hefur mjög athyglisvert verðlag á vörum sínum. Þegar kassastrákurinn hafði bíbbað það sem ég keypti og tilkynnt mér heildarverðið lá við að ég afhenti honum bíllyklana.

Ekki hafði ástandið batnað þegar ég kom heim með góssið og tómt veskið. 

Örvæntingarfullum fjölskyldumeðlimi hafði tekist að veiða frosinn brauðhleif upp úr frystikistunni og smellt honum í örrann með þeim árangri að eldur varð laus í tækinu. Var töluverður reykur í eldhúsinu og hóstakjöltur.

Ekki var eiginkonunni hlátur í huga þegar allt var afstaðið, ég sestur örþreyttur með kaffibolla við eldhúsborðið og leyfði mér þann munað að brosa dauflega með hjartanu í brælunni af bráðnuðum örbylgjuofni.

Þá henti hún í mig dagblöðunum hryssingsleg og sagði í kveðjuskyni:

"Hér hefurðu svo ömurleika dagsins."

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gott er að hafa húmorinn með sér inn í niðdimma nóttina.  Maður er eiginlega farinn að þrá martröð næturinnar í stað andvökunnar. Að vera svefnlaus um nætur og hálf sofandi á daginn er ansi lýandi til lengdar.

Ljós er þó fram undan, nýsköpunar engill er fæddur. Mér er sagt að í stað vængja hafi hann greinar eins og björk. Hef sjálfur duddað við svona nýsköpun. Einkaleyfi á uppfinningu hjá ríkjum efnahagsbandalags Evrópu hefur þetta fengist. Annars hefur þetta eiginlega eingöngu valdið mér persónulgri nýsköðun með gjaldþroti, furðulegu heilabroti og eins konar útbroti. Þess vegna hef ég lagt einkaþotunni minni enda svo sem sjlálfgert þar sem varla sést orðið snjór í byggð.

Ég bíð með að tjá mig um kennitöluflakkara, sem ég var eiginlega að gera merkilega uppgötvun um, að eigin mati.     

Egill Jónsson (IP-tala skráð) 8.11.2008 kl. 01:44

2 identicon

Já, góðan daginn. En gaman og hressilegt svona í morgunsárið.

Arinbjörn Kúld (IP-tala skráð) 8.11.2008 kl. 07:09

3 Smámynd: Baldur Gautur Baldursson

Maður á ekki að laga of flókinn mat á morgnanna. Ég setti td. egg i örbóið hérna hjá mér og fór svo á kamarinn.  Þegar ég kem fljótt aftur rýkur úr örbóinu, eggin hafa horfið og eftir er bara örbó sem hefur fengið gulbrúna glanshúð að innan.  Lyktin var ólýsanlega viðbjóðsleg og tók 3 daga, helling af reykelsi, stofuhita við við +9°C i íbúðinni í þessa 3 daga (opið út) og 2100 ISK virði af hreinsunarlegi, burstum og skröpu.

Lagið EKKI mat fyrr en þið eruð tilbúin að hugsa út í afleiðingarnar og hvað sé hægt að laga i örbói og hvað ekki.   

Baldur Gautur Baldursson, 9.11.2008 kl. 21:31

4 identicon

Ahahahahah, brjáluð morgunverk, sé þetta alveg fyrir mér og það að gera á sér morgunverkin er náttúrulega bar mjög forvitnilegt, hvað meinar maðurinn eiginlega?

Þetta hefur sennilega verið um það leyti sem við hjónin sátum í mikilli yfirvegun með kaffi og hlustuðum í rólegheitum á róandi rödd dagskrágerðarmannsins á rás eitt, oh svo notalegt eitthvað. YHH og Gunnar litli biður að heilsa

Yrsa Hörn Helgadóttir (IP-tala skráð) 10.11.2008 kl. 19:06

5 identicon

alva (IP-tala skráð) 10.11.2008 kl. 22:37

6 Smámynd: Líney

Samúðar knús,vona  að næstu dagar verði  ykkur betri

Líney, 14.11.2008 kl. 09:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband