Þýskir Íslandsvinir

Þjóðverjar_með_Ortwin_í_LaufásiSé mark takandi á fréttum er nóg framboð af óvinum íslensku þjóðarinnar í veröldinni.

Plús það að hún er sjálfri sér það óholl að henni hefur sennilega tekist að eyða fyrirfram öllum gróðanum af olíunni og gasinu sem hún er um það bil alveg næstum því að finna.

 

Þá er nú guðsþakkarvert að eiga einhverja vini.

Þar fara frændur vorir í Færeyjum fremstir.

Undanfarin tíu ár hefur Akureyrarkirkja verið í ungmennasamskiptum við systurkirkju sína í Bochum í Þýskalandi.

Þar er líka hlýlega til okkar hugsað þessa dagana.

Íslandsvinurinn og presturinn Ortwin Pflaeging boðar til fundar næstkomandi sunnudagskvöld í kaffihúsi kirkjunnar í Bochum-Stiepel. Fimmtíu aðrir þýskir Íslandsfarar og Íslandsvinir eru boðaðir á fundinn.

Yfirskrift fundarboðsins er:

Ísland í verstu krísunni síðan síldin hvarf

Í boðinu segir Ortwin að mjög misvísandi upplýsingar berist frá landinu. 

(Sú misvísun á sér sennilega þær skýringar að samkvæmt fréttum er allt hér á heljarþröm en ég hef á hinn bóginn borið mig frekar karlmannlega í samskiptum mínum við hann.)

Ortwin hefur engu að síður sverar áhyggjur af þessari vinaþjóð sinni og kveðst hafa fengið ótal áskoranir um að eitthvað þurfi að gera okkur til stuðnings. Ýmsar aðgerðir séu hugsanlegar.

Fyrsta skrefið sé þó að hittast til skrafs og ráðagerða.

Svona eru vinir í raun.

Myndin er af þýskum ungmennum í Íslandsferð fyrir nokkrum árum. Ortwin er maðurinn í íslensku lopapeysunni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann G. Frímann

Alvöru vinir eru mikilvægir og vissulega er hann þröngur hinn gullni meðalvegur. Góðu fréttirnar eru þær að síldin er komin aftur.

Jóhann G. Frímann, 11.11.2008 kl. 21:17

2 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Sæll Svavar. Alltaf gott að bera sig karlmannlega . Að gerast óvinur Íslands í þessari krísu er álíka gáfulegt og að hata kanarífuglinn í námunum sem notaður er til að aðvara námumenn um súrefnisskort. Allur hinn vestræni heimur hefur verið á flippi undanfarin ár en við erum, eins og kanarífuglinn,viðkvæmust fyrir skortinum. kveðja til þín Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 11.11.2008 kl. 22:55

3 Smámynd: Theódór Norðkvist

Gott starf og þakkarvert að heyra að kirkjur landsins séu að þjóna hlutverki sínu vel. Við eigum kannski fleiri vini en við höldum.

Theódór Norðkvist, 11.11.2008 kl. 23:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband