15.11.2008 | 14:08
Skíthællinn ég
Ekki þarf að hafa mörg orð um þau ósköp sem dunið hafa yfir íslenska þjóð á undanförnum vikum. Fólk hefur tapað sparifé sínu og misst vinnuna. Eignir þess eru skyndilega verðminni en lánin sem á þeim hvíla. Okurvextir og verðbólga sliga heimilin.
Ég er ekki hissa á að fólk sé reitt, rísi upp og mótmæli.
Mótmælandinn er á vissan hátt alltaf fórnarlamb og þannig upplifa Íslendingar sig þessa dagana. Þeir eru fórnarlömb skammsýnna stjórnmálamanna, vanhæfra embættismanna, sofandi fjölmiðla, gráðugra fjárglæframanna og síðast en ekki síst kreppunnar sjálfrar.
Þar að auki sýpur þjóðin seyðið af eigin neyslufylleríi.
Fjölmiðlar keppast við að draga upp þessa mynd af okkur sem fórnarlömbum.
Aumingja við. Æ, æ. Vei, ó, vei. Allir eru vondir við okkur. Líka umheimurinn. Evrópa og USA.
Íslenskar saumaklúbbskonur í Spánarferð verða fyrir aðkasti á veitingahúsum. Danir neita að bjarga Íslendingi úr sjávarháska.
Svo er að koma á daginn að ekki er nóg með að við séum lögð í einelti af tilverunni heldur erum við skíthælar líka.
Gunnar Smári Egilsson ritar grein í Moggann í dag. Þar fjallar hann m. a. um þá 75.000 Íslendinga sem skrifað hafa undir yfirlýsingu á netinu þess efnis að þeir væru ekki hryðjuverkamenn.
Um þá segir Gunnar Smári:
Þeir hefðu átt að bæta við að þeir væru hins vegar skíthælar.
Og hvers vegna telur Gunnar Smári að við séum skíthælar? Jú, eins og hann segir:
Samingar verða að gilda, skuldbindingar að halda og orð að standa.
Ég er sammála Gunnari Smára um það.
Það sem fólki gengur á hinn bóginn illa að skilja og sætta sig við er að það sé látið borga fyrir manndrápsskuldir sem aðrir stofnuðu til. Og skuldabagginn settur á komandi kynslóðir líka.
Gunnar Smári titlar sig blaðamann en þess má geta að á sínum tíma var hann forstjóri fjölmiðlafyrirtækisins Dagsbrúnar sem gaf út fríblaðið Nyhedsavisen í Danmörku.
Þegar því útgáfuævintýri lauk í ágúst á þessu ári var tapið af því um eitt hundrað milljón dollarar.
Skráðar kröfur í þrotabú fyrirtækisins eru meira en milljarður íslenskra króna og kröfuhafar 160. Ábyrgðarsjóður launa í Danmörku er einn þeirra. Krafa hans er upp á 8 milljónir danskra króna. Skiptum á þrotabúinu lýkur sennilega ekki fyrr en á þarnæsta ári.
Bíræfnir menn reistu skýjaborgir. Þegar þær hrundu grófst fólk í rústunum sem ekki hafði komið nálægt byggingastarfinu.
Lýðurinn möglar og er kallaður skíthæll af bíræfnum mönnum.
Athugasemdir
Líney, 15.11.2008 kl. 15:25
" All around the world, people believe that there is a great conflict between good and evil. Well, it’s true that there’s a conflict, but it only exists in the human mind."
Don Miguel Ruiz Quote
Vilborg Eggertsdóttir, 15.11.2008 kl. 16:02
Þessi pistill er afar góður, ég er sammála hverju orði.
Ég stökk inn að lesa og hélt kannski að einhver hefði kallað þig skíthæl vegna starfsins sem þú gegnir. Það hefur ekki alveg bráð af mér síðan ég asnaðist inn á síðu vantrúar um daginn.
Mér hefur sjaldan sviðið eins nokkur lestur og ómaklegu árásirnar á presta og biskup þar.
Ragnheiður , 15.11.2008 kl. 19:24
Ég hvet Horsí til að benda á dæmi um ómaklegar árásir á presta og biskup á Vantrú. Ég myndi þvert á móti segja að þar séu fullt af maklegum árásum á þessa aðila.
Matthías Ásgeirsson, 15.11.2008 kl. 23:30
Gunnar Smári er einn af þeim sem ég tek ekki mikið mark á... hann er svona gjammari... ef hann kallar okkur skíthæla sem skrifuðum á listann... þá lít ég bara á það sem hrós...
Brattur, 15.11.2008 kl. 23:37
Við skulum líta á bankana voru þeir ekki að gera svokallað greiðslumat hvað þíðir það í mínum huga var það mat bankans hvað einstaklingur gæti greitt af skuldum án þess að hætta væri á ferðum fyrir hann og bankann en hvað gerist bankinn stendur ekki við neitt en lántakinn á að standa við sitt. Einhver spyr hvað ert þú að fara ? Ég er vissu um að bankarnir stóðu fyrir fellingu á krónunni og það þíðir verðbólgu og að lánin hækka ef bankinn hefði verið heiðarlegur hefði hann sett í greiðslumarkið verðbólgan fer upp um það sem hann var búinn að ákveða að fella gengið mikið en það geri hann ekki heldur notar lægstu mögulegu tölu ekki er heldur gert ráð fyrir að lántakandinn geti verið tekju laus um tíma hefði mátt hafa inni á tíuára tímabili 6 til 8 mánuði vegna veikenda.Þetta er eins og maðurinn sagði eitt samsæri gegn almengi.
Jón Ólafur Vilhjálmsson, 16.11.2008 kl. 17:52
Mér datt strax í hug orð drottins: "Sá yðar sem syndlaus er, kasti fyrsta steininum" og einnig orðin: "Varast skaltu að kasta steini úr glerhúsi". Það stóð í mér varðandi seinni tilvitnunina, hvort hana væri að finna í Biblíunni og þá hvar. Sömuleiðis, ef svo væri ekki, hvaðan er hún. Boltinn er hér með á þér séra Svavar!
Jóhann G. Frímann, 17.11.2008 kl. 14:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.