Saman

par

 

Ég eyddi kvöldinu í að skrifa prédikun fyrir sunnudaginn. Þar les ég lítið ástarljóð eftir þýska rithöfundinn Hans Bender sem mér finnst svo fallegt. Það heitir Gemeinsam á frummálinu.

Þannig hljóðar það í minni þýðingartilraun:

 

 

 

 

Saman

 

Hnífurinn skiptir brauðinu

í jafna hluta.

Þar sem varir þínar snertu glasið

drekk ég næsta sopann.

Gakktu í mínum skóm!

Þegar veturinn kemur

skýlir kápan þín mér.

Við grátum úr einu auga,

að kvöldi lokum við dyrunum

til að vera ein. Í svefni

flæða draumar þínir inn í mína.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brattur

... afskaplega ljúft í morgunsárið... takk fyrir þetta...

Brattur, 5.7.2008 kl. 11:31

2 Smámynd: Anna

Tilraunin hefur tekist vel.  Falleg lýsing á sameinandi nægjusemi væntumþykjunnar.

Anna, 5.7.2008 kl. 17:43

3 identicon

yndislegt ljóð alveg.

alva (IP-tala skráð) 6.7.2008 kl. 00:31

4 Smámynd: Óskar Arnórsson

Fínn lestur Svavar eins og venjulega! Ég er með eina spurningu:

Ég er svona mitt á milli trúaðir eða krónískur efasemdarmaður.

Hvað er að fólki sem þreytist ALDREI á að skíta niður ALLA trú og trúmál og er alveg ofstækisfullt í þá átt?

Gemeinsam þýðir líklegast "gemenskap" á sænsku? Er það rétt?

Bjó í þýskalandi fyrir mörgum árum og búin að týna málinu næstum alveg. Kann voða lítið í ljóðum einn kann að meta falleg orð eins og þessi..

Óskar Arnórsson, 6.7.2008 kl. 07:46

5 Smámynd: Svavar Alfreð Jónsson

Þakka þér fyrir, Óskar. Ofstæki er aldrei gott, sama í hvaða átt það fer.

"Gemeinsam" þýðir held ég "sameiginlegt".

Sá sem kann að meta falleg orð kann alveg heilmikið í ljóðum.

Svavar Alfreð Jónsson, 6.7.2008 kl. 10:09

6 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Sæll Svavar. Þetta ljóð hrærir ekki við mér því miður. Sennilega af því ég er ekki ástfangin. Þetta ljóð er hinsvegar alveg tilvalið í giftingarræðu og eflaust mjög fallegt ... ég er bara of lítið fyrir " sameiginlegt "  en endilega fleiri ljóð ..gangi þér allt í haginn kveðja Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 6.7.2008 kl. 20:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband