Jólin 2008

fotspor

 

Þótt geisi þessi kreppa koma jól

og klukkan helgar tíðir inn mun slá.

Hún minnir á þann himins höfuðstól

sem hvorki ryð né mölur grandað fá.

 

Að nýju vængi fær hin forna sögn

því fjær og nær er ævintýrið sagt

og aftur fyllist hjartað helgri þögn

er heyrir það um barn í jötu lagt.

 

Nú birtist vonarstjarnan há og heið,

af hennar skini veröldin er kysst.

Til Betlehem hún lýsir öllum leið

og líka þeim sem kjarkinn hafa misst.

 

Á jólum verður gata þeirra greið

sem ganga til að finna Jesú Krist.

 

Ég óska ykkur öllum gleðilegra jóla og bið Guð að blessa nýtt ár.

Hjartans þakkir fyrir samskiptin á árinu 2008.

Svavar Alfreð Jónsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brattur

... fallegt hjá þér Svavar... óska þér og þínum gleðilegra jóla... takk fyrir skemmtileg skrif á árinu...

Brattur, 24.12.2008 kl. 14:16

2 Smámynd: Ragnheiður

Hugheilar jólakveðjur og þakka þér fyrir skemmtileg skrif og bloggvináttu á árinu sem er að líða

Ragnheiður , 24.12.2008 kl. 15:07

3 identicon

 3D Santa Tendrum ljós í hverju hjarta, tendrum ljós á tréinu bjarta.Guð gefi þér og þínum gleði og frið á jólum og birtu og hamingju á nýju ári.

      KV Bögga N.

Bögga (IP-tala skráð) 24.12.2008 kl. 17:01

4 Smámynd: Þorsteinn Briem

Gleðileg jól!

Þorsteinn Briem, 25.12.2008 kl. 10:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband